Skilmálar Kjara

Almennt

Skilmálar þessir gilda um rafræna þjónustu Kjara og notkun á vefsvæði Kjara. Skilmálarnir innihalda ákvæði um réttindi og skyldur notanda (hér eftir „notandi“ eða „þú“) í áskriftarþjónustu og upplifunarferlinu.

Með því að ýta á hnappinn „Ég hef lesið og samþykki skilmála Kjara“ samþykkir þú skilmála að áskriftarþjónustu Kjara (hér eftir „áskrift“ eða „þjónustan“). Skilmálarnir verða áfram aðgengilegir á vefsvæði þínu.

Kjara og áskriftarþjónusta

Kjara er þjónustuvefur hugbúnaðarfyrirtæksins Revol ehf., kt. 410223-1550, Eiðistorgi 13-15, 170 Seltjarnarnes. Með því að nýta sér áskriftarþjónustu Kjara færð þú aðgang að upplýsingum um hvaða alla virka og óvirka kjarasmaninga sem hafa verið skráðir, geta tengst bókhaldskerfum og kallað allar tölur kjaramsnings inn í kerfi bókhalds, séð stéttarfélög og aðildarfélög hvers og eins samnings, notað filtera og gert ítarlegri greiningar á því hvað hentar þínum rekstri, skráð að fá sendar tilkynningar þegar kjarasmaningur er uppfærður, fá aðgengi að ítarlegri upplýsingum sem ekki liggja fyrir óskráða notendur. Kjara áskilur sér rétt til að ákvarða einhliða þá þjónustu sem er í boði hjá Kjara á hverju tíma og auka eða minnka við hana ef þörf krefur.

Notandi greiðir fyrirfram mánaðarlegt áskriftargjald fyrir þjónustu Kjara samkvæmt verðskrá Kjara sem sjá má á vefsvæði Kjara, www.kjara.is/verdskra. Áskrift tekur gildi um leið og aðgangur er stofnaður og fyrsta greiðsla hefur verið framkvæmd. Áskriftargjald er skuldfært af greiðslukorti árlega og endurnýjast þá áskriftartímabilið sjálfkrafa, nema þú hafir áður sagt upp áskriftinni í samræmi við skilmála þessa. Á reikningsyfirliti kemur fram að seljandi sé Revol ehf. Rekningar eru sendir á heimbanka rekstraraðila eða fyrirtækis.

Kjara áskilur sér rétt til að breyta verðskrá með tilkynningu til notanda á uppgefið netfang eða símanúmer.

Allar tilkynningar til Kennitalan og fyrirspurnir varðandi skilmála þessa skal senda á netfangið tryggvi@revol.is.

Aðgangur og innskráning

Við stofnun áskriftar og aðgangs að þjónustuvef Kjara er notast við innskráningu með netfangi og aðgangsorði. Þú velur innskráningu með netfangi gegnum innskráningarviðmót Kjara.is. Eftir auðkenningu þarf samþykki fyrir skilmálum þessum og vinnslu persónuupplýsinga til þess að geta nýtt sér áskriftarþjónustu Kjara.

Kjara áskilur sér rétt til að ákveða einhliða breytingar á innskráningarleiðum í áskrift.

Þú ert ábyrg/ur fyrir því að vernda aðgangsauðkenni þín og gera viðeigandi ráðstafanir til að tryggja leynd þeirra. Ef þú verður vör/var við að óviðkomandi aðili hafi komist yfir aðgangsupplýsingar þínar skalt þú láta Kjara vita eins fljótt og auðið er með tölvupósti á tryggvi@revol.is.

Óheimilt er að veita öðrum einstaklingi eða lögaðila aðgang að áskrift þinni. Einnig er óheimilt að nota aðgang og áskrift Kjara í hvers konar ólögmætum tilgangi. Þá er óheimilt að senda skrár eða gögn á vefsvæði Kennitalan sem gætu innihaldið tölvuvírusa eða trójuhesta eða annað sem getur innihaldið skaðlega eiginleika og haft áhrif á eðlilega virkni vefsvæðisins eða þjónustu Kjara.

Brot á skilmálum þessum leiðir til tafarlausrar lokunar á aðgangi þínum.

Tilkynningar/skilaboð

Kjara kann að senda þér tilkynningar eða skilaboð í tengslum við þá þjónustu sem er í boði hverju sinni í áskrift Kjara. Með því að samþykkja skilmála þessa fyrir áskrift Kjara samþykkir þú að Kjara megi senda þér tilkynningar eða skilaboð á netfang þitt eða símanúmer, þ.á.m. tilboð um fríðindi, vörur eða þjónustu Kjara eða samstarfsaðila/þriðja aðila.

Tilkynningarnar eru sjálfvaldar í upphafi en hægt er að fara í stillingar og breyta eða afskrá sig úr þjónustunni. Kjara kann að fjarlægja, breyta eða bæta við tilkynningum án sérstaks samþykkis.

Kjara reynir eftir fremsta megni að tryggja að tilkynningar berist þér fljótt og örugglega en ábyrgist ekki að þær berist á réttum tíma, innihaldi ávallt nýjustu eða réttar upplýsingar eða berist ekki vegna villna í efni tilkynninga.

Öryggi og persónuvernd

Kjara hefur það að markmiði að tryggja ábyrga og örugga vinnslu allra persónuupplýsinga sem unnið er með á þjónustuvef Kennitalan. Um vinnslu persónuupplýsinga gilda ákvæði laga nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga og reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 2016/679 (GDPR).

Framangreind löggjöf og persónuverndarstefna Kennitalan er sett til að tryggja réttindi þín þegar kemur að vernd persónuupplýsinga þinna. Vinsamlega kynntu þér persónuverndarstefnu Kjara vel og hvað felst í vinnslu persónuupplýsinga um þig með því að skrá þig í áskriftarþjónustu Kjara.

Persónuverndarstefna Kjara er órjúfanlegur hluti skilmála þessa.

Rafræn gagnaöflun og miðlun

Þjónusta Kjara felur m.a. í sér að notendur geta óskað eftir að fá upplýsingar eða tilboð frá stéttarfélögum, ríkisáttarsemjara, fjármálastofnunum og/eða öðrum þjónustuaðilum sem birtast á vefsvæði Kjara. Í slíku ferli samþykkir notandi að Kjara sendi þær upplýsingar sem hafa verið skráðar um fyrirtæki, um þig eða Kjara fær frá þriðja aðila til samstarfsaðila og nauðsynlegar eru til að verða við ósk um upplýsingar eða tilboð. Jafnframt samþykkir notandi að móttakandi upplýsinganna hafi heimild til þess að vinna með þær og eftir atvikum hafa samband við notanda til að bregðast við beiðni notandans.

Kjara kann einnig að kalla eftir gögnum um notanda frá þriðja aðila í þeim tilgangi að veita notanda betri yfirsýn yfir sín mál hjá Kjara. Eru gögnin þá flutt og þeim miðlað á milli vefþjónustu Kjara og þriðja aðila en Kjara kallar eftir uppflettingu í gegnum vefþjónustulag eða virkjar auðkenningu í vefviðmóti þriðja aðila á grundvelli samþykkis notanda. Öryggi og dulkóðun upplýsinga er ávallt tryggð í flutningi.

Vefkökur

Við heimsókn á þjónustuvef og/eða innskráningu á áskriftarvef Kjara verða til fótspor, eða vefkökur eins og það er kallað, í tölvu þinni um upplifunarferli þitt. Vefkökur eru litlar textaskrár sem eru vistaðar í tölvu eða snjalltæki þínu þegar þú heimsækir vefsíðuna í fyrsta sinn og gera vefsíðunni kleift að safna upplýsingum um aðgerðir þínar á vefsíðunni. Með því að samþykkja notkun á vefkökum samþykkir þú að Kjara og Ycode megi m.a. safna upplýsingum sem nota má til greiningar á notkun og aðsókn þinni að þjónustu Kennitalan.

Nánar er fjallað um vefkökur í persónuverndarstefnu Kjara.

Hlutleysi og takmörkun ábyrgðar

Kjara býður upp á faglega og óháða þjónustu sem byggist á upplýsingum sem Kjara aflar frá þriðja aðila án þess að hafa hagsmuni af innihaldi þeirra. Kjara leitast við að hafa allar upplýsingar og tilvísanir réttar og í samræmi við nýjustu útgáfur og uppfærslur. Kjara getur þó hvorki ábyrgst að upplýsingarnar séu ávallt réttar né að áætlun út frá tölfræðilegum gögnum standist skoðun fram í tímann.

Kjara er hlutlaus aðili og tekur ekki á nokkurn hátt afstöðu til upplýsinga eða tilboða sem Kjara aflar fyrir hönd notenda frá þriðja aðila. Þá tekur Kjara ekki afstöðu til þess hvort upplýsingar sem birtar eru frá þriðja aðila séu réttar, löglegar eða siðlegar né ábyrgist vörur eða þjónustur frá þriðja aðila þó þær séu birtar á vef Kjara. Þjónusta Kjara felst eingöngu í upplýsinga- og greiningarþjónustu til að aðstoða þig með fjármál heimilisins en felur ekki í sér lögfræðilega, skattalega eða aðra formlega fjármálaráðgjöf.

Kjara ber ekki ábyrgð á tjóni sem hlotist getur vegna galla eða bilunar í vél- eða hugbúnaði sem tengjast vefsvæði Kjara, vafra eða stýrikerfi notanda, tengingu við veraldarvefinn eða af öðrum þeim orsökum sem kunna að valda stöðvun eða rofi á þjónustu Kjara, s.s. villur í gögnum eða truflanir í rekstri tölvukerfa.

Kjara ber ekki ábyrgð á tjóni sem verður rakið til óviðráðanlegra orsaka (e. force majure), s.s. stríði, hryðjuverkum, náttúruhamförum, farsóttum, verkfalli eða viðskiptabanni né annarra atvika sem stafa af stjórnmálalegum, fjármála- eða efnahagslegslegum atburðum sem kunna að koma í veg fyrir eða valdarofi á þjónustu Kennitalan.

Kjara áskilur sér rétt á að rjúfa aðgang að vefsvæði Kjara og/eða upplýsingum um stundarsakir fyrirvaralaust ef þörf krefur vegna viðhalds og endurbóta á þjónustu Kjara, vegna uppfærslu á öryggisráðstöfunum o.þ.h.

Hugverkaréttindi

Vefsvæði Kjara og allt innihald þess þ.á.m. útlitshönnun, vörumerki, hugbúnaður, ljósmyndir, ritstýrt efni og annað ótiltekið efni eru hugverk eiganda Kjara og varið samkvæmt höfundar- og vörumerkjalögum á Íslandi og annars staðar. Allt innihald vefsvæðis Kjara er eign Revol ehf. og Ríkisáttarsemjara

Öll dreifing, endurútgáfa eða rafræn afritun af innihaldi vefsvæðisins, hvort heldur sem er að hluta eða heild, er óheimil og ber þér sem notanda einungis að nýta þjónustu Kjara til persónulegra nota inni á vefsvæði Kjara og í samræmi við ákvæði skilmála þessa.

Uppsögn, lokun aðgangs og gildistími

Skilmálar þessir gilda á meðan þú ert í áskrift að þjónustu Kjara. Þú getur hvenær sem er sagt upp áskriftinni og lokast þá aðgangur þinn að vefsvæði Kennitalan þegar áskriftartímabili lýkur. Til þess að segja upp áskrift að þjónustu Kjara ferð þú í stillingar og velur að segja upp áskriftinni.

Kjara getur einnig hvenær sem er og án fyrirvara einhliða lokað aðgangi, ef notandi verður t.a.m. uppvís að misnotkun eða brýtur á einhvern hátt í bága við ákvæði laga eða skilmála þessa. Í slíku tilviki verður send tilkynning á uppgefið netfang notanda um fyrirhugaða lokun.

Skilmálabreytingar

Kjara áskilur sér til að breyta skilmálum þessum einhliða hvenær sem er. Komi til breytinga verða allar breytingar aðgengilegar á vefsvæði Kjara. Sé breytingin ekki til hagsbóta fyrir þig verður þér jafnframt tilkynnt um breytinguna þar sem vakin er athygli á því hvað felst í breytingunum og rétti til að segja áskriftinni upp. Geri þú ekki athugasemdir við fyrirhugaðar breytingar fyrir gildistöku telst vera komið samþykki fyrir þeim.

Lögsaga og varnarþing

Skilmálar þessir gilda um áskriftarþjónustu Kjara. Þeir lúta íslenskum lögum. Ef ákvæði laga um rafræn viðskipti og aðra rafræna þjónustu nr. 30/2002, lög um rafræna auðkenningu og traustþjónustu fyrir rafræn viðskipti nr. 55/2019, lög um neytendasamninga nr. 16/2016 eða ákvæði laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018, svo dæmi séu nefnd, eiga við um þjónustu Kennitalan og ganga lengra í að tryggja réttindi þín en skilmálar þessir gilda þau framar ósamrýmanlegum ákvæðum skilmála þessara.

Rísi mál út af skilmálum þessum skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.

Með því að samþykkja skilmála þessa staðfestir þú að hafa kynnt þér þær reglur sem gilda um notkun áskriftarþjónustu Kjara og staðfestir að þú munir fylgja þeim í hvívetna.

Skilmálar þessir eru gefnir út þann 5.júní 2024 og taka gildi gagnvart notanda frá þeim degi er hann samþykkir.